Nokia Video Call Stand PT 8 - Öryggisatriði

background image

Öryggisatriði

Lesið þessar einföldu leiðbeiningar. Sé þeim ekki fylgt getur það verið hættulegt eða varðað
við lög. Lesa skal alla notendahandbókina til að fá nánari upplýsingar.

VIÐURKENND ÞJÓNUSTA

Aðeins viðurkennt starfsfólk má setja upp eða gera við þessa vöru.

TENGING VIÐ ÖNNUR TÆKI

Þegar tækið er tengt öðru tæki skal lesa notendahandbók með því vandlega,
einkum upplýsingar um öryggi. Ekki má tengja saman ósamhæf tæki.

VATNSHELDNI

Tækið er ekki vatnshelt. Halda skal því þurru.

Hlíta skal öllum lögum og virða einkalíf og lögbundin réttindi annarra við alla notkun þessa
tækis.

Hleðslutæki og rafhlöður

Athuga ber tegundarnúmer hleðslutækja áður en þau eru notuð með þessu tæki. Þetta tæki
er ætlað til notkunar þegar það er hlaðið orku frá AC-1 og ACP-12.

Viðvörun! Aðeins skal nota hleðslutæki sem Nokia hefur samþykkt til notkunar
með þessu tiltekna tæki. Ef notaðar eru aðrar gerðir gæti öll ábyrgð og samþykki
fallið niður og slíkri notkun getur fylgt hætta.

Seljandi símans veitir upplýsingar um fáanlega aukahluti sem samþykktir eru til notkunar.

Þegar aukahlutur er tekinn úr sambandi skal taka í klóna, ekki leiðsluna.

background image

5

Copyright

© 2004 Nokia. All rights reserved.